Þjónusta
Iðan fræðslusetur veitir fjölbreytta þjónustu sem tengist námi, starfsþróun og viðurkenningu á færni. Þjónustan felur meðal annars í sér náms- og starfsráðgjöf, raunfærnimat, mat og viðurkenningu á erlendu starfsnámi og framkvæmd sveinsprófa.
Miðlun og þjónusta
Náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat
Náms- og starfsráðgjöf er einstaklingum að kostnaðarlausu. Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa Iðunnar eru raunfærnimat, almenn náms- og starfsráðgjöf, sérúrræði í sveinsprófum og mat og viðurkenning á erlendu starfsnámi.
Fjöldi ráðgjafaviðtala á árinu var 1.931 sem er töluvert fleiri viðtöl en á fyrra starfsári og umsagnir um mat og viðurkenningu á erlendu starfsnámi voru 112 sem er talsverð aukning frá fyrra starfsári. Iðan sagði upp samningi við atvinnuvegaráðuneytið vegna mats og viðurkenningar á erlendu starfsnámi frá og með áramótum 2025- 2026 en tók að sér að sinna verkefninu til 30. júní 2026.
Sveinspróf
Iðan sér um framkvæmd sveinsprófa og þjónustar sveinsprófsnefndir í 30 löggiltum iðngreinum. Þjónustan nær meðal annars til skráningar nemenda í próf, undirbúnings prófa og aðstoðar við gerð verklagsreglna um framkvæmd þeirra.
Þjónusta í tölum
-
752
-
1.931
-
164
-
7.446
-
112
Nemastofa atvinnulífsins
Markmið og tilgangur Nemastofu atvinnulífsins er að stuðla að fjölgun faglærðs fólks í atvinnulífi meðal annars með því að stuðla að fjölgun nema í iðnnámi, fjölga fyrirtækjum sem bjóða iðnnemum vinnustaðanám og fjölga þeim sem ljúka sveinsprófi.
Sveinspróf
Iðan sér um framkvæmd sveinsprófa og þjónustar sveinsprófsnefndir í 30 löggiltum iðngreinum. Þjónustan nær meðal annars til skráningar nemenda í próf, undirbúnings prófa og aðstoðar við gerð verklagsreglna um framkvæmd þeirra.
Sveinsprófstölfræði
Fjöldi sveinsprófa og staðfestra námssamninga eftir iðngreinum, starfsárin 2021–2026.
Afhending sveinsbréfa
Á árinu þreyttu alls 752 einstaklingar sveinspróf og langflestir luku prófi með góðum árangri. Iðan heldur utan um afhendingu sveinsbréfa.
Raunfærnimat
Á starfsárinu var farið í átak til að kynna betur raunfærnimat og þau tækifæri sem það getur skapað fólki.