Fara beint í efni

Prent- og miðlunargreinar

Starfsárið einkenndist af áherslu á framtíð prent- og miðlunargreina og tengingu íslensks fagfólks við alþjóðlega þróun.

Alþjóðlegt samstarf í brennidepli

Kristjana Guðbrandsdóttir, vefstjóri og leiðtogi prent- og miðlunargreina
Kristjana Guðbrandsdóttir Vefstjóri og leiðtogi prent- og miðlunargreina

Meðal nýrra námskeiða var sérhæft námskeið í umbroti og framleiðslu í Adobe InDesign fyrir dagblöð, tímarit og fréttabréf, ný námskeið í Photoshop og vinnusmiðja fyrir stafræna prentara.

Íslenskt fagfólk í prent- og miðlunargreinum keppir við fyrirtæki í nágrannalöndum og því skiptir öflugt alþjóðlegt samstarf og þekkingarnet miklu máli. Leiðtogi prent- og miðlunar sótti eina af lykilráðstefnum evrópsks prentiðnaðar í London. Þar komu saman um 200 stjórnendur og sérfræðingar til að ræða stöðu og framtíð iðnaðarins. Í kjölfarið tóku prentgreinar í fyrsta sinn þátt í Pappírsvikunni – Love Paper Week, alþjóðlegu fræðsluátaki um pappír, prent og sjálfbærni.

Fagfólk í prentiðnaði, sem áður sat í fagráði prentgreina, heimsótti höfuðstöðvar Heidelberg í Düsseldorf í mars. Þar var handsalað samkomulag um fræðslu fyrir prentara sem starfa á Heidelberg-vélum á Íslandi.

Í maí kynntu leiðtogar prent- og bílgreina sér nýjustu þróun á FESPA-sýningunni í Barcelona þar sem sérfræðingar úr prent-, merkinga- og bílageiranum komu saman.

Hápunktur starfsársins var Snertipunktar – Dagur prents og hönnunar, í byrjun maí. Þessi stóri fræðsluviðburður kallar á mikinn undirbúning. Undirbúningsnefnd fagfólks úr prent- og miðlunariðnaði ásamt leiðtoga prentgreina sá um mörkun viðburðarins og fræðsluinnihald, leitaði víða fanga hjá félagsfólki og var í nánu samstarfi við fagfólk í auglýsingageiranum. Í tilefni dagsins var gefið út dagblaðið Litli Prentarinn, áminning um mikilvægi prentaðra fjölmiðla og óður til Prentarans, málgagns stéttarfélaga í prentiðnaði sem kom út á árunum 1910–2019.

Meðal erlendra gesta voru Gundula Ullah frá Funke Media í Þýskalandi, sem fjallaði um sjálfbærni prentaðra fjölmiðla og mikilvægi öflugrar prentútgáfu, og Moritz Feil frá Fogra Institute, sem fjallaði um litastýringu, ISO-staðla og gæðamál í stafrænni prentun. Samhliða heimsókninni var þróað samstarf við Fogra um sérhæfða fræðslu fyrir íslenskt fagfólk.

Íslenskt fagfólk í prent- og miðlunargreinum keppir við fyrirtæki í nágrannalöndum og því skiptir öflugt alþjóðlegt samstarf og þekkingarnet miklu máli.