Fara beint í efni

Fræðslustyrkir

Iðan fræðslusetur er hluti af Áttinni en þar eiga fyrirtæki sem greiða endurmenntunargjöld til Iðunnar, og eru í skilum, rétt á að sækja um fræðslustyrk vegna starfstengdra námskeiða.

Styrkur Iðunnar til fyrirtækis vegna fræðslu, getur að hámarki orðið 20% af greiddum iðgjöldum til Iðunnar á liðnu almanaksári. Að jafnaði nemur styrkur Iðunnar 65% af kostnaði við hverja umsókn. Umsóknir fara allar í gegnum Áttina. Allar frekari upplýsingar um fræðslustyrkina má finna á vef Iðunnar og Áttarinnar.

Heildarupphæð styrkja til fyrirtækja í gegnum áttina var 14.872.087 kr. og voru 273 umsóknir samþykktar frá 119 fyrirtækjum.

Fræðslustyrkir til fyrirtækja í gegnum Áttina

Bílgreinar 4.359.514 kr.
Prent- og miðlunargreinar 183.710 kr.
Málm- og véltæknigreinar 5.666.148 kr.
Bygginga- og mannvirkjagreinar 2.722.403 kr.
Matvæla- og veitingagreinar 1.940.312 kr.
Samtals 14.872.087 kr.