Markaðsmál
Sérstaða Iðunnar sem sí- og endurmenntunarmiðstöðvar í iðnaði er ótvíræð. Starfið byggir á nánum tengslum við iðngreinarnar, fagfólk og fyrirtæki og fræðslan tekur mið af þeirri þekkingu og færni sem atvinnulífið kallar eftir. Á sama tíma er samkeppni um athygli mikil. Framboð fræðslu hefur aukist og fólk hefur úr fleiri leiðum að velja þegar kemur að því að sækja sér nýja þekkingu.
Markviss uppbygging og aukinn sýnileiki
Í því umhverfi skiptir öflugt markaðsstarf máli. Verkefnið er ekki aðeins að vekja athygli á einstökum námskeiðum heldur að gera sérstöðu Iðunnar sýnilega og tryggja að félagsfólk og atvinnulíf þekki þau tækifæri sem standa þeim til boða. Sterk tengsl Iðunnar við iðnaðinn eru þar lykilatriði og markaðsstarfið þarf að miðla þeirri sérstöðu með skýrum hætti.
Á starfsárinu var unnið að því að styrkja grunn markaðsstarfsins. Vinna við nýja vörumerkjastefnu hófst með það að markmiði að skerpa á stöðu vörumerkisins og skapa skýrari umgjörð um ásýnd og samskipti Iðunnar. Markaðsteymið var jafnframt styrkt með ráðningu markaðsfulltrúa og hefur sú viðbót aukið getu teymisins til að sinna þeim fjölda verkefna sem markaðsstarf Iðunnar kallar á.
Hefðbundin markaðsblanda var nýtt til að ná til ólíkra hópa og miðlaval sniðið að hverju verkefni. Virkni á samfélagsmiðlum var stór hluti starfsins ásamt auglýsingum á Google og Já.is, útvarpsauglýsingum og umhverfisauglýsingum. Raunfærnimat var meðal sýnilegustu verkefna ársins og ný nálgun við kynningu þess lagði aukna áherslu á reynslu fólks og raunverulegar sögur.
Samhliða var unnið að aukinni sjálfvirkni í markaðsstarfinu. Vinna hófst við að færa hönnun og birtingu námskeiðaauglýsinga í sjálfvirkara ferli þar sem upplýsingar úr kerfum Iðunnar nýtast við gerð og stýringu auglýsinga. Markmiðið er að draga úr endurtekinni handavinnu og nýta tíma og fjármagn betur.
Tuttugu ára afmæli Iðunnar var eitt af stærri verkefnum starfsársins. Mótuð var sérstök afmælisásýnd og í tilefni af afmælinu var gefinn út afmælisnámsvísir með úrvali námskeiða sem félagsfólki bauðst að sækja án endurgjalds, eitt námskeið á hvern félagsmann. Þannig voru tímamótin tengd beint við kjarnastarf Iðunnar.
Viðburðir settu einnig sterkan svip á starfsárið. Markaðsteymið hélt utan um kynningu og ásýnd Verks og vits, Mannauðsdagsins, Iðnaðarsýningarinnar, Málmsuðudagsins og Dags prents og hönnunar auk afhendingar sveinsbréfa í Reykjavík og á Akureyri.
Þar fyrir utan sinnti teymið fjölda sérverkefna, allt frá árlegu jólakorti Iðunnar yfir í miðlun og birtingar í kringum stærri fræðsluverkefni.
Markaðsstarfið snýst þannig um meira en sýnileika. Það snýst um að tengja fólk við tækifæri til að efla þekkingu sína og færni og tryggja að sérstaða Iðunnar skili sér í þeirri miklu samkeppni sem ríkir um athygli fólks.
Verkefnið er ekki aðeins að vekja athygli á einstökum námskeiðum heldur að gera sérstöðu Iðunnar sýnilega og tryggja að félagsfólk og atvinnulíf þekki þau tækifæri sem standa þeim til boða.
Sýnileiki og miðlun
Tölfræði markaðsmála
-
11 milljónir
-
122
-
204
-
16
-
121
-
472+
-
80%
Hlutfall Meta-birtinga af heildarbirtingum á Meta og Google
Umferð og virkni
-
125.524
-
49.980
-
14.504
-
39%
Hlutfall heimsókna frá leitarvélum