20 ára afmæli
Árið 2026 fagnar Iðan 20 ára afmæli. Tímamótin endurspegla árangur, öflugt samstarf og framlag þeirra fjölmörgu einstaklinga sem hafa sótt sér þekkingu og eflt færni sína með Iðunni. Afmælisárið er tilefni til að fagna því sem áunnist hefur og fólkinu sem hefur mótað starfsemina.
Afmælisárið
Yfirskrift afmælisársins er „Þróun og þekking í 20 ár“ og endurspeglar kjarna starfs Iðunnar. Í tilefni tímamótanna var meðal annars gefið út sérstakt afmælisrit þar sem valin vefnámskeið voru kynnt. Félagsfólki var jafnframt boðið ókeypis vefnámskeið að eigin vali í tilefni af afmælinu.
Tuttugu ár í starfi
-
2006

Iðan stofnuð við sameiningu fjögurra fræðslumiðstöðva og verður öflug miðstöð sí- og endurmenntunar fyrir iðnaðinn.
-
2007

Raunfærnimat hefst og bílgreinar bætast við.
-
2008

Úrræði í boði fyrir atvinnulausa eftir hrunið: Þátttaka í fyrsta Íslandsmóti iðn- og verkgreina.
-
2009

Iðan hlýtur starfsmenntaverðlaunin í flokki skóla og fræðsluaðila.
-
2010

604 nýsveinar þreyta sveinspróf. Iðan hefur haldið utan um námssamninga og framkvæmd sveinsprófa frá stofnun.
-
2011

Iðunni falið að meta erlenda menntun og starfsreynslu.
-
2012

Iðan fær EQM gæðavottun. Námskeið sem halda íslensku handverki lifandi eru reglulega í boði.
-
2013

Reglur um nemaleyfi, sveinspróf og ferilbækur samræmdar í 27 greinum.
-
2014

Starfsemin flytur í Vatnagarða.
-
2015

Stórir fræðsluviðburðir haldnir í prent-, bíl- og málmgreinum. Erasmus+ gæðaviðurkenning.
-
2016

Iðan tekur þátt í Verk og vit í fyrsta sinn.
-
2017

Aðalverðlaun á alþjóðlegu VPL Biennale ráðstefnunni um raunfærnimat. Iðan fer í samstarf við grunnskóla um kynningu á matvælagreinum.
-
2018

Stórt verkefni um raunfærnimat fyrir pólska innflytjendur. Rafbíladagurinn haldinn.
-
2019

Myndver sett upp fyrir rafræna fræðslu. Bakarar landsins læra um súrdeigsbakstur.
-
2020

Kennsla fer á netið í heimsfaraldri og Iðan fær landsþekkta skemmtikrafta til að létta lund félagsfólks í samkomubanni.
-
2021

Sumarnámssamningar fyrir iðnnema í heimsfaraldri.
-
2022

Nemastofa atvinnulífsins stofnuð.
-
2023

Iðan verkefnastýrir Minni framtíð Íslandsmóti iðn- og verkgreina í Laugardalshöll.
-
2024

Bransadagar helgaðir nýsköpun haldnir í Iðunni.
-
2025

Öryggisskóli iðnaðarins stofnaður.
-
2026

Þróun og þekking í 20 ár
Árið 2026 fagnar Iðan 20 ára afmæli. Tímamótin endurspegla árangur, öflugt samstarf og framlag þeirra fjölmörgu einstaklinga sem hafa sótt sér þekkingu og eflt færni sína með Iðunni. Afmælisárið er tilefni til að fagna því sem áunnist hefur og fólkinu sem hefur mótað starfsemina.
Sérstakt merki fyrir tímamótin
Í tilefni af afmælinu var unnið sérstakt viðhafnarútlit á merki Iðunnar. Hönnunin byggir á núverandi merki en þar mætast ísómetrískt form táknsins og mýkri línur tölustafanna 20. Útkoman tengir þannig saman rótgróna ásýnd Iðunnar og hátíðlegt, nútímalegt yfirbragð afmælisársins.
Merki Iðunnar hannaði Halla Mixa og Anna Pálína hjá Hvíta húsinu viðhafnarútlitið.

















