Raunfærnimat
Á starfsárinu var farið í átak til að kynna betur raunfærnimat og þau tækifæri sem það getur skapað fólki.
Raunfærnimat er mikilvæg leið til þess að viðurkenna þekkingu og færni sem fólk hefur aflað sér á vinnumarkaði og auðvelda því leið til frekara náms og starfsþróunar. Fimm ólíkir einstaklingar deildu reynslu sinni og upplifun af raunfærnimati til að varpa ljósi á hvernig ferlið fer fram og hvaða þýðingu það getur haft fyrir starfsferil fólks.
Á starfsárinu fóru 164 einstaklingar í raunfærnimat hjá Iðunni í 21 grein, sem er örlítil fækkun frá árinu á undan. Metnar einingar voru samtals 7.446.
Halldór Örn Halldórsson er í dag meistari í pípulögnum. Hann hafði unnið við pípulagnir í tíu ár áður en hann fór í raunfærnimat. Kolbrún Þorsteinsdóttir hafði unnið við hárgreiðslu í 20 ár áður en hún ákvað að fara í raunfærnimat og fannst ferlið skemmtilegt. Almar Reginn Björnsson hafði starfað í þrjú ár við pípulagnir þegar hann ákvað að fá reynslu sína metna. Guðbjörg Ósk Andreasdóttir Gunnarsdóttir bakari er alin upp í bakaríi afa síns og ömmu og hefur haft áhuga á faginu frá barnsaldri. Gunnar Ásgeir Sigurjónsson er reyndur matsaðili í raunfærnimati.
-
164
-
7.446
-
1.931