Alþjóðlegt samstarf
Alþjóðastarf Iðunnar var öflugt og fjölbreytt á starfsárinu. Í gegnum Erasmus+ fékk fjöldi iðnnema, nýsveina, félagsfólks og starfsfólks tækifæri til náms, starfsþjálfunar og starfsspeglunar í Evrópu. Jafnframt tók Iðan á móti evrópskum námsmönnum, kennurum, sérfræðingum og faghópum.
Erasmus+ og evrópskt samstarf
Samstarf við fyrirtæki var eflt, meðal annars í bílgreinum, og nýjar leiðir þróaðar til að gera fyrirtækjum kleift að nýta Erasmus+ til starfsþróunar og alþjóðlegrar þekkingarmiðlunar í gegnum samstarfsvottun Iðunnar (Erasmus+ consortium). Iðan studdi jafnframt Verkiðn við undirbúning og framkvæmd til þátttöku í EuroSkills 2025 í Herning í Danmörku, þar sem íslenskt keppnisfólk tók þátt í fjölbreyttum iðn- og verkgreinum.
Mikil áhersla var lögð á þróunarverkefnin MCEU og EQAMOB. Í MCEU stýrði Iðan vinnu við prófun örnáms og stafrænna viðurkenninga fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu og veitingagreinum. Seinni tilraunalotan fór fram og þátttaka frá Íslandi var mjög góð. Samhliða var safnað endurgjöf frá þátttakendum og fyrirtækjum og unnið að miðlun niðurstaðna með könnunum, viðtölum og alþjóðlegum umræðufundum.
EQAMOB hófst formlega á starfsárinu með það að markmiði að endurskoða og efla evrópskt gæðamerki fyrir fyrirtæki sem taka á móti nemum og starfsfólki í alþjóðlegri þjálfun. Iðan hefur tekið virkan þátt í þróun gæðaviðmiða, ferla, ásýndar og kynningarefnis verkefnisins, auk undirbúnings nýrrar vefsíðu og mótunar á verklagi fyrir útgáfu viðurkenninga samhliða verkefnisstjórnun.
Alþjóðateymi Iðunnar vann jafnframt að samhæfingu verkefna, umsóknum, skýrslugerð, stuðningi við þátttakendur og samstarfsfólk og miðlun tækifæra. Sýnileiki alþjóðastarfsins var aukinn með fréttum, hlaðvörpum, kynningum og endurbættum upplýsingum á vef Iðunnar.
Þátttaka í evrópskum tengslanetum styrkti enn frekar tengsl Iðunnar við þróun starfsmenntunar, örnáms, gæðamála og náms- og þjálfunarverkefna í Evrópu.
Tölfræði Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefna 2025–2026
-
84
-
39
-
18
-
28
-
36
-
2
-
25
-
14
Samstarfslönd eftir fjölda þátttakenda
Samstarfslönd eftir fjölda þátttakenda
Heildarfjármögnun frá Erasmus+ 2025–2026
| KA1, náms- og þjálfunarverkefni | 39 m.kr. (2025 og 2026) |
| KA2, samstarfsverkefni | 8 m.kr. (greitt út á starfsárinu) |
| Samtals | 47 m.kr. |