Fara beint í efni

Matvæla- og veitingagreinar

Starfsárið einkenndist af fjölbreyttu fræðsluframboði og aukinni áherslu á verklega fræðslu fyrir fagfólk í matvæla- og veitingagreinum.

Fjölbreytt fræðsla og faglegt samstarf

Steinn Óskar Sigurðsson, leiðtogi matvæla- og veitingagreina
Steinn Óskar Sigurðsson Leiðtogi matvæla- og veitingagreina

Alls voru haldin 19 staðbundin námskeið á starfsárinu, þar af 15 verkleg að hluta eða öllu leyti. Fjórir nýir námskeiðstitlar bættust við framboðið. Góð þátttaka var á námskeiðum ársins og nokkur þeirra urðu fullbókuð.

Áfram var unnið að þróun fræðslu í samstarfi við fagfólk greinanna. Meðal verkefna var gerð vefnámskeiðs um úrbeiningu á lambaskrokk ásamt verklegum námskeiðum og áframhaldandi samstarf við landslið kjötiðnaðarmanna. Verkefnin eru dæmi um hvernig Iðan vinnur að því að miðla fagþekkingu með fjölbreyttum hætti og tengja fræðsluna við þarfir atvinnulífsins.

Fagfólk sem áður sat í fagráði matvæla- og veitingagreina fór í náms- og kynnisferð til Reggio Emilia og Parma á Ítalíu. Í ferðinni var meðal annars heimsóttur ALMA matvæla- og veitingaskólinn í Parma, fag- og vörusýning auk mavælaframleiðenda á svæðinu. Ferðin veitti góða innsýn í fagmenntun, framleiðslu og þróun matvæla- og veitingagreina á Ítalíu.

Þrír íslenskir keppendur tóku þátt í EuroSkills í Herning í Danmörku og kepptu í matreiðslu, framreiðslu og bakstri. Þar sem ekki náðist næg þátttaka þjóða til að halda keppni í kjötiðn á EuroSkills fór sérstök alþjóðleg keppni í greininni fram á Spáni. Mikil vinna var lögð í undirbúning keppenda og stóðu þau sig vel fyrir hönd Íslands.