Nemastofa atvinnulífsins
Markmið og tilgangur Nemastofu atvinnulífsins er að stuðla að fjölgun faglærðs fólks í atvinnulífi meðal annars með því að stuðla að fjölgun nema í iðnnámi, fjölga fyrirtækjum sem bjóða iðnnemum vinnustaðanám og fjölga þeim sem ljúka sveinsprófi.
Nemastofa vinnur auk þess að verkefnum sem miðast sérstaklega að því að fjölga konum í iðngreinum og efla kennslu og þjálfun á vinnustað.
Á tímabilinu skráði Nemastofa um 92% fyrirtækja sem sóttu um nemaleyfi í umsóknargátt MMS og hélt kynningar og fræðslufundi um vinnustaðanám, fór í fyrirtækjaheimsóknir og tók þátt í viðburðum sem tengjast kynningu á iðnnámi, vinnustaðanámi og fleiru.
Iðnnám er í sókn
Nemastofa atvinnulífsins tekur saman tölfræðiupplýsingar um iðnnám s.s. um iðnnema, um fjölda nema í vinnustaðanámi, um fjölda fyrirtækja sem bjóða vinnustaðanám, um fjölda nýsveina á ári og fleira. Iðnnemum hefur fjölgað umtalsvert á síðustu misserum og eins hefur fjöldi þeirra sem ljúka sveinsprófi aukist verulega. Á árinu 2025 var met sett í fjölda nýsveina en þá luku samtals 980 iðnnemar sveinsprófi.
Fyrirmyndafyrirtæki Nemastofu atvinnulífsins
Nemastofa veitir fyrirtækjum viðurkenningu sem standa vel að þjálfun og kennslu iðnnema á vinnustað. Á árinu hlutu fyrirtækin Bílapunkturinn, Héðinn hf. og Snyrtistofan Garðatorgi viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki Nemastofu atvinnulífsins.
-
92%
-
980
Skráningar á umsóknum fyrirtækja um nemaleyfi voru gerðar af Nemastofu