Ný stefna Iðunnar
Á starfsárinu var mótuð ný stefna fyrir Iðuna til næstu þriggja ára í góðu samstarfi við stjórn og starfsfólk. Stefnan byggir á skýrri sýn um hlutverk Iðunnar fyrir íslenskan iðnað og þeirri trú að öflug sí- og endurmenntun sé lykillinn að framþróun einstaklinga, fyrirtækja og iðnaðar í heild sinni.
Tilgangur Iðunnar er að efla hæfni starfsfólks í iðngreinum þannig að það standi í fremstu röð á heimsvísu. Iðan leggur því áherslu á að vera leiðandi í sí- og endurmenntun í íslenskum iðnaði. Framtíðarsýn Iðunnar er að vera frumkvöðull í fræðslu sem eykur metnað og gæði í iðnaði.
Metnaður, trú á starfsemi Iðunnar og mikilvægi hennar einkenndi stefnuvinnuna í heild sinni.
Stefnan byggir á fjórum áherslum sem lýsa forgangsröðun í starfsemi Iðunnar á gildistíma stefnunnar.
- Framúrskarandi gæði og fræðsluframboð sem endurspeglar raunverulegar þarfir félagsfólks og atvinnulífs.
- Halda áfram að byggja upp öflugan og samstilltan hóp starfsfólks þar sem fagmennska, traust og samvinna eru í fyrirrúmi.
- Vöxtur, meðal annars með því að auka þekkingu félagsfólks á þjónustu og réttindum sínum og bjóða upp á enn fjölbreyttara fræðsluframboð.
- Jákvæð áhrif á iðnað með öflugu samstarfi við hagaðila og verkefnum sem styðja við þróun og ímynd iðngreina.
Til að fylgja stefnunni eftir hefur verið unnin ítarleg aðgerðaáætlun með skýrum markmiðum, mælikvörðum og ábyrgðarskiptingu. Þannig tryggir Iðan að stefnan verði lifandi verkfæri sem styður við stöðugar umbætur, aukið virði fyrir félagsfólk og áframhaldandi uppbyggingu íslensks iðnaðar.