Ársskýrsla 2025–2026
Ársskýrsla Iðunnar fræðsluseturs 2025-2026
Ávarp framkvæmdastjóra
Þróun og þekking í 20 ár
Árið 2026 markar tímamót í sögu Iðunnar fræðsluseturs. Á þessu ári fögnum við tuttugu ára afmæli félagsins og gefst okkur því kærkomið tækifæri til að staldra við, horfa yfir farinn veg en jafnframt beina sjónum að þeim tækifærum sem fram undan eru.
Það er bæði gaman og mikilvægt að fagna áföngum sem þessum og hefur verið haldið upp á tuttugu árin með ýmsum hætti. Félagsfólki var t.d. boðið frítt á valin vefnámskeið, vörumerki Iðunnar fékk sérstakan viðhafnarbúning og í ágúst var haldin glæsileg afmælishátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem félagsfólki og fjölskyldum þeirra var sérstaklega boðið.
Skýr stefna fyrir nýjan kafla
Eitt stærsta verkefni ársins var umfangsmikil stefnumótunarvinna með virkri þátttöku stjórnar og starfsfólks. Sú vinna leiddi af sér stefnuskjal þar sem tilgangur, hlutverk og framtíðarsýn er skilgreind. Tilgangur Iðunnar er mikilvægur og metnaðarfullur; að efla hæfni starfsfólks í iðngreinum þannig að það standi í fremstu röð á heimsvísu. Hlutverk Iðunnar sem leiðandi aðila í sí- og endurmenntun fyrir íslenskan iðnað var staðfest og framtíðarsýnin er að vera frumkvöðull í fræðslu sem eykur metnað og gæði í iðnaði.
Stefnan gildir til þriggja ára og byggir á fjórum lykiláherslum: framúrskarandi gæðum og fræðsluframboði, öflugum og samstilltum starfsmannahópi, vexti og jákvæðum áhrifum á iðnaðinn. Með stefnunni fylgir skýr aðgerðaáætlun og mælanleg markmið.
Stefnuvinnan gekk afar vel, ný stefna skapar aukinn skýrleika í starfseminni og verður okkur mikilvægt leiðarljós bæði í daglegum störfum og við stærri ákvarðanir. Það sem stóð upp úr eftir vinnuna var þó ekki síður metnaður hjá starfsfólki og stjórn og mikil trú á starfsemi Iðunnar. Af því er ég sérstaklega stolt.
Fræðsla byggð á þörfum atvinnulífsins
Iðan leggur áherslu á að fræðsluframboðið svari raunverulegum þörfum starfsfólks og fyrirtækja í iðnaði og lögðum við því mikla vinnu í greiningu á fræðsluþörfum á árinu. Ýmsar leiðir voru nýttar til að safna upplýsingum, s.s. með könnunum meðal félagsfólks og fyrirtækja, fyrirtækjaheimsóknum, á viðburðum og með fjölmörgum samtölum við fagfólk. Með þessu fáum við verðmætar upplýsingar sem nýtast við að þróa þjónustu og fræðslu fyrir okkar stóra og fjölbreytta hóp félagsfólks.
Iðan hélt rúmlega 400 námskeið og sóttu yfir 4.000 einstaklingar fræðslu hjá Iðunni á síðasta starfsári. Það er okkur keppikefli að þjónusta félagsfólk um land allt og voru um 80 staðnámskeið haldin á landsbyggðinni, auk þess sem boðið var upp á fjarkennslu þegar kennsluaðstæður leyfðu.
Ég er sannfærð um að sterk framtíð iðnaðarins byggi á hæfu fólki, fagmennsku og vilja til að þróast. Það er hlutverk Iðunnar að styðja við þá vegferð.
Öflug starfsemi
Í kjölfar námskeiða er óskað eftir endurgjöf frá þátttakendum og er afar ánægjulegt að sjá almenna ánægju með fræðsluna. Sérstaklega er gaman að nefna að þekking leiðbeinenda hjá Iðunni þykir almennt mjög góð, og eru þessar niðurstöður okkur hvatning til að sækja enn frekar fram á sviði gæða í fræðslustarfi.
Alþjóðlegt samstarf á ávallt sinn mikilvæga sess hjá Iðunni enda veitir það okkur aðgang að nýjum hugmyndum, kennsluaðferðum og lausnum sem nýtast í þróun fræðslu hér á landi. Iðan tók þátt í tveimur alþjóðlegum þróunarverkefnum á starfsárinu, erlendir leiðbeinendur tóku að sér kennslu á nokkrum af okkar námskeiðum og fjölmargir fengu Evrópustyrki til að sækja sér þekkingu og þjálfun í Evrópu fyrir milligöngu Iðunnar.
Blásið var auknu lífi í formlegt gæðastarf á árinu. EQM+ gæðavottun Iðunnar var endurnýjuð til næstu þriggja ára og var samhliða og í framhaldi af því gæðastarf Iðunnar eflt enn frekar, s.s. með innri úttektum og skilgreindum úrbótaverkefnum.
Líkt og verið hefur frá stofnun Iðunnar sinntum við því mikilvæga verkefni að sjá um umsjón sveinsprófa í 30 greinum. Verkefnið er umfangsmikið og mikilvægt fyrir samfélagið nú þegar þörf er á fleira fagmenntuðu starfsfólki í íslensku atvinnulífi. Því er afar ánægjulegt að ásókn í iðnmenntun hefur aukist síðustu árin. Iðan býður einnig upp á raunfærnimat og fengu alls 165 einstaklingar starfsreynslu sína metna til styttingar náms í gegnum raunfærnimat hjá Iðunni á síðasta ári.
Fjölbreytileikinn í starfseminni á sinn þátt í því hvað það er gaman að starfa fyrir Iðuna. Iðan á og rekur tvö félög með Rafmennt, annars vegar Nemastofu atvinnulífsins og hins vegar Öryggisskóla iðnaðarins. Á þeim vettvangi var einnig líflegt. Þar má t.a.m. nefna að Nemastofa gerði þriggja ára samstarfssamning við mennta- og barnamálaráðuneytið um að fjölga konum sem velja iðnnám og efla vinnustaðanám. Öryggisskólinn tók þá mjög mikilvægt skref þegar sett var upp kennsluaðstaða á 4. hæð Stórhöfða 27 og hún útbúin á hátt sem ætlað er að auka áhrif fræðslunnar og styðja þannig við öfluga öryggismenningu í íslenskum iðnaði.
Sterk liðsheild
Árið færði okkur einnig áskoranir, t.a.m. þegar loftgæðavandi kom upp í starfsstöðvum Iðunnar. Meðan unnið er að úrbótum var skrifstofa Iðunnar flutt að Stórhöfða 27. Flutningar gengu vonum framar og fer vel um starfsfólk Iðunnar í tímabundnum nýjum heimkynnum. Áskoranir gefa líka tækifæri til vaxtar og kom bersýnilega í ljós við þessar aðstæður hve sveigjanlegt, jákvætt og samheldið starfsfólk Iðunnar er.
Þessi góði andi sést vel í starfsmannamælingum, en Iðan mælir helgun og ýmsa þætti í starfsumhverfinu tvisvar sinnum á ári. Það hefur verið mjög gefandi að sjá starfsánægju og helgun vaxa umtalsvert síðustu tvö árin og mælist helgun starfsfólks nú í efsta fjórðungi fyrirtækja í alþjóðlegum gagnabanka Gallup.
Nú þegar við siglum inn í nýjan áratug í sögu Iðunnar er ég í senn þakklát, bjartsýn og spennt. Fram undan er spennandi vegferð við innleiðingu nýrrar stefnu, áframhaldandi uppbyggingu gæðastarfs og eflingar starfsfólks sem og þróun fræðslu sem skapar raunveruleg verðmæti fyrir íslenskan iðnað. Með áframhaldandi metnaði, góðu samstarfi við hagaðila og framsýni er ég viss um að Iðan muni áfram gegna lykilhlutverki í að efla færni, fagmennsku og samkeppnishæfni íslensks iðnaðar.

Ég er sannfærð um að sterk framtíð iðnaðarins byggi á hæfu fólki, fagmennsku og vilja til að þróast. Það er hlutverk Iðunnar að styðja við þá vegferð.
Lykiltölfræði
-
1.470.101 þús. kr.
-
433
-
21
-
164
-
4.209
-
5.457
-
752
-
133
-
15.550
Hlutfall félagsfólks á námskeiðum
-
62,2%
Bílgreinar
-
38,3%
Bygginga- og mannvirkjagreinar
-
52,7%
Matvæla- og veitingagreinar
-
58%
Málm- og véltæknigreinar
-
57,8%
Prent- og miðlunargreinar
-
77,4%
Almenn námskeið
20 ára afmæli
Árið 2026 fagnar Iðan 20 ára afmæli. Tímamótin endurspegla árangur, öflugt samstarf og framlag þeirra fjölmörgu einstaklinga sem hafa sótt sér þekkingu og eflt færni sína með Iðunni. Afmælisárið er tilefni til að fagna því sem áunnist hefur og fólkinu sem hefur mótað starfsemina.