Fara beint í efni

Bygginga- og mannvirkjagreinar

Mikill fjölbreytileiki einkenndi þau verkefni sem unnin voru á starfsárinu.

Fjölbreytni í fyrirrúmi

Ólafur Ástgeirsson, leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina
Ólafur Ástgeirsson Leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina

Meðal nýrra námskeiða má nefna Fermacell klæðningar, námskeið um gæðakerfi, rakamælingar í húsum, microsement, vatnsþéttingar, Svansvottaðar endurbætur, ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda, sprinkler úðakerfi, grjóthleðslu, moltugerð, blágrænar ofanvatnslausnir og öryggi við þakpappalögn. Fyrstu prófin voru haldin í styrkflokkun á timbri sem gefur íslenskum timburframleiðendum möguleika á að selja styrkflokkað timbur til notkunar í byggingum.

Þrír keppendur í bygginga- og mannvirkjagreinum tóku þátt í EuroSkills sem fram fór í Herning í Danmörku í september 2025. Þau kepptu í húsasmíði, pípulögnum og málun. Var undirbúningi þeirra hagað eins og kostur var og stóðu þau sig vel á mótinu. Iðan tók þátt í Verk og vit í mars. Þar var lögð áhersla á að kynna þjónustu Iðunnar á breiðum grundvelli og 20 ára afmæli Iðunnar.

Áfram var haldið góðu samstarfi við aðila í bygginga- og mannvirkjagreinum. Má þar m.a. nefna Grænni byggð, Húsverndarstofu, Steinsteypufélagið og HMS. Fylgst er grannt með breytingum sem eru að verða á laga- og reglugerðarumhverfi byggingariðnaðarins en þær hafa áhrif á nokkur námskeið á vegum Iðunnar. Styrkir fengust fyrir verkefnum sem unnið hefur verið að. Annars vegar frá Aski mannvirkjarannsóknasjóði vegna gluggaþéttinga og hins vegar úr Fræðslusjóði vegna námsefnis um vistvænar byggingar.