Fara beint í efni

Sveinspróf

Iðan sér um framkvæmd sveinsprófa og þjónustar sveinsprófsnefndir í 30 löggiltum iðngreinum. Þjónustan nær meðal annars til skráningar nemenda í próf, undirbúnings prófa og aðstoðar við gerð verklagsreglna um framkvæmd þeirra.

Iðan býður upp á sérúrræði í sveinsprófum fyrir einstaklinga sem búa við fötlun eða aðra hömlun sem getur haft áhrif á próftöku. Sérúrræðin geta meðal annars falist í lengri próftíma og stærra letri á prófblöðum.

  • 752

    þreyttu sveinspróf í 25 greinum

Kynning á Sveininum, náms- og prófakerfi Iðunnar

Sveinninn – náms- og prófakerfi Iðunnar

Á starfsárinu fór einnig fram ítarleg vinna við að þróa áfram Sveininn, náms- og prófakerfi Iðunnar sem þjónar sveinsprófum.

Kerfið er viðamikið og í því er hægt að skipuleggja próf nema í 30 iðngreinum með aðkomu sveinsprófsnefnda og meistara nemanna. Eins og í fræðsluumsjónarkerfi Iðunnar er markmiðið að kerfið sé einfalt í notkun fyrir alla notendur þó að virknin sé flókin í uppbyggingu. Sveinsprófstakar fá aðgang að mínum síðum þar sem þeir fá allar upplýsingar um próf, próftíma, prófstað og fá upplýsingar um sérúrræði sem þeir eiga rétt á. Þá er einkunnum miðlað í gegnum kerfið.