Fara beint í efni

Stjórn og skipulag

Hlutverk Iðunnar er að sjá fyrirtækjum og einstaklingum fyrir nýrri þekkingu og færni eftir þörfum og aðstæðum á hverjum tíma.

Ávarp stjórnarformanns

Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, stjórnarformaður
Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Stjórnarformaður

Samstillt lið með skýra sýn til framtíðar

Góð lið byggja á ólíkri reynslu, þekkingu og styrkleikum einstaklinganna og ná árangri vegna þess að þau stefna í sömu átt. Þannig upplifi ég Iðuna fræðslusetur eftir viðburðaríkt starfsár. Öflug stjórn, framkvæmdastjóri, stjórnendur og starfsfólk mynda samstillt lið með skýrt markmið: að vinna í þágu félagsmanna og efla færni, hæfni og þekkingu í íslensku atvinnulífi.

Hlutverk Iðunnar er fjölþætt. Auk sí- og endurmenntunar í fjölmörgum iðngreinum sinnir setrið mikilvægum verkefnum fyrir atvinnulífið og hið opinbera, meðal annars framkvæmd sveinsprófa og raunfærnimati. Raunfærnimat getur stytt leið fólks að formlegri menntun með því að meta þekkingu, færni og starfsreynslu til eininga. Þar eigum við að halda áfram að ryðja hindrunum úr vegi og hafa eitt að leiðarljósi: Nemandinn í raunfærnimati á að vera í fyrsta sæti.

Á starfsárinu höfum við unnið markvisst að stefnumótun Iðunnar, skerpt á áherslum, vinnuferlum og mælikvörðum og lagt aukna áherslu á samtal við félagsfólk og fyrirtæki. Það er ánægjulegt að sjá mikinn áhuga á námskeiðum og endurmenntun, enda er þekking ein mikilvægasta fjárfesting fyrirtækja og einstaklinga.

Starfsárið færði okkur óvænt og krefjandi verkefni þegar við urðum vör við slæm loftgæði í húsnæði Iðunnar í Vatngörðum. Brugðist var strax við og skrifstofustarfsemin flutt tímabundið að Stórhöfða. Umfang nauðsynlegra framkvæmda reyndist meira en vonast hafði verið til. Við þessar aðstæður hefur jákvæðni, seigla og lausnamiðað hugarfar starfsfólks verið til fyrirmyndar.

Þegar ég horfi yfir starfsárið stendur starfsfólkið upp úr. Iðan býr að framúrskarandi starfsfólki sem fylgist vel með þróun og nýjungum og miðlar nýrri þekkingu til iðnaðarins. Það er styrkur sem við ætlum að byggja á áfram.

Ég þakka stjórn, framkvæmdastjóra, stjórnendum og öllu starfsfólki Iðunnar fyrir öflugt samstarf og framúrskarandi vinnu á árinu.

Undirskrift Huldu Birnu Kjærnested Baldursdóttur
Við þessar aðstæður hefur jákvæðni, seigla og lausnamiðað hugarfar starfsfólks verið til fyrirmyndar.

Stjórn Iðunnar

Í fjölbreyttu fræðslustarfi Iðunnar er lögð áhersla á stuðning við starfsþróun félagsfólks og framþróun íslensks iðnaðar. Iðan sinnir símenntun starfsmanna í bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum, bílgreinum og matvæla- og veitingagreinum.

Lesa meira
Stjórn Iðunnar

Ný stefna Iðunnar

Á starfsárinu var mótuð ný stefna fyrir Iðuna til næstu þriggja ára í góðu samstarfi við stjórn og starfsfólk. Stefnan byggir á skýrri sýn um hlutverk Iðunnar fyrir íslenskan iðnað og þeirri trú að öflug sí- og endurmenntun sé lykillinn að framþróun einstaklinga, fyrirtækja og iðnaðar í heild sinni.

Lesa meira
Starfsmaður Iðunnar við símsvörun

Skipurit Iðunnar

Nýtt skipulag Iðunnar tók gildi 1. september 2026. Starfseminni er skipt í fjögur svið undir framkvæmdastjóra.

Lesa meira

Gæðastjórnun fær aukið vægi

Í upphafi starfsárs hófst markviss undirbúningsvinna fyrir EQM+ gæðavottun Iðunnar. Vottunin felur í sér reglubundið mat á gæðakerfi og starfsháttum Iðunnar og er mikilvægur liður í að tryggja fagmennsku, gagnsæi og samræmi í starfseminni. Felur hún einnig í sér möguleika á að greina tækifæri til umbóta og styðja við stöðuga þróun.

Lesa meira
Sólveig Indriðadóttir, náms- og starfsráðgjafi og gæðastjóri

Markviss uppbygging og aukinn sýnileiki

Sérstaða Iðunnar sem sí- og endurmenntunarmiðstöðvar í iðnaði er ótvíræð. Starfið byggir á nánum tengslum við iðngreinarnar, fagfólk og fyrirtæki og fræðslan tekur mið af þeirri þekkingu og færni sem atvinnulífið kallar eftir. Á sama tíma er samkeppni um athygli mikil. Framboð fræðslu hefur aukist og fólk hefur úr fleiri leiðum að velja þegar kemur að því að sækja sér nýja þekkingu.

Lesa meira
Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, deildarstjóri markaðs- og framleiðsludeildar

Mannauður

Því til stuðnings er félagið með skilgreinda fræðslu- og jafnréttisstefnu sem og áætlun gegn einelti og áreitni á vinnustað. Iðan hefur hlotið jafnlaunastaðfestingu og leggur áherslu á að fylgjast með og vinna að stöðugum umbótum á starfsumhverfinu. Í þeim tilgangi eru haldin regluleg starfsmannasamtöl og gerðar kannanir meðal starfsfólks.

Lesa meira
Starfsfólk Iðunnar fræðsluseturs, Öryggisskólans og Nemastofu

Líflegt starfsár að baki

Helstu viðburðir starfsársins, mánuð fyrir mánuð, frá júlí 2025 til júní 2026.

Lesa meira
Luiz Lobo heimsótti Iðuna í janúar 2026

20 ára afmæli

Árið 2026 fagnar Iðan 20 ára afmæli. Tímamótin endurspegla árangur, öflugt samstarf og framlag þeirra fjölmörgu einstaklinga sem hafa sótt sér þekkingu og eflt færni sína með Iðunni. Afmælisárið er tilefni til að fagna því sem áunnist hefur og fólkinu sem hefur mótað starfsemina.

Lesa meira
Fyrstu námskeið Iðunnar árið 2006