Fara beint í efni

Fyrirtækjaþjónusta

Fyrirtækjaþjónusta Iðunnar felst í góðu samtali stjórnenda fyrirtækja við leiðtoga iðngreinanna. Leiðtogar greinanna heimsækja fyrirtæki á sínu sviði.

Starfsfólk Héraðsprents með leiðtoga prent- og miðlunargreina
Starfsfólk Héraðsprents með leiðtoga prent- og miðlunargreina. Farið var í 133 fyrirtækjaheimsóknir á liðnu starfsári.

Í heimsóknunum er meðal annars farið yfir námsframboð Iðunnar, boðið upp á sérsniðin námskeið, gerðar fræðslugreiningar og kynntir möguleikar á styrkjum til fræðslu. Þá er einnig fjallað um raunfærnimat. Á liðnu starfsári fóru leiðtogar greinanna samtals í 133 fyrirtækjaheimsóknir.

  • 14,9 m.kr.

    Heildarupphæð styrkja til fyrirtækja

  • 273

    Samþykktar umsóknir frá 119 fyrirtækjum

  • 133

    Fyrirtækjaheimsóknir