Fara beint í efni

Stjórn Iðunnar

Hlutverk Iðunnar er að sjá fyrirtækjum og einstaklingum fyrir nýrri þekkingu og færni eftir þörfum og aðstæðum á hverjum tíma.

Stjórn Iðunnar

Í fjölbreyttu fræðslustarfi Iðunnar er lögð áhersla á stuðning við starfsþróun félagsfólks og framþróun íslensks iðnaðar. Iðan sinnir símenntun starfsmanna í bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum, bílgreinum og matvæla- og veitingagreinum.

Stjórn

Stjórn Iðunnar skipa: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir formaður, Georg Páll Skúlason varaformaður, Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, Eyjólfur Bjarnason, Jón Bjarni Jónsson, Ólafur Ormsson kom í stað Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur á starfsárinu, Hilmar Harðarson, Svanur Karl Grjetarsson, Jón Bjarni Jónsson, Sverrir Gunnarsson, Gunnar Valur Sveinsson (vantar á mynd) og Halldór Arnar Guðmundsson eru áheyrnarfulltrúar og varamenn.

Stjórn Iðunnar fundaði 9 sinnum. Auk þess voru 2 aukafundir ásamt fundum um stefnumótun.

Stjórnarteymi

Stjórnarteymi Iðunnar skipa: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, Georg Páll Skúlason, Óskar Hafnfjörð Gunnarsson og Eyjólfur Bjarnason, auk Vilborgar Helgu Harðardóttur framkvæmdastjóra og Brynju Blomsterberg fjármálastjóra.