Afhending sveinsbréfa
Á árinu þreyttu alls 752 einstaklingar sveinspróf og langflestir luku prófi með góðum árangri. Iðan heldur utan um afhendingu sveinsbréfa.
Mikilvægur áfangi í lífi fagfólks
Afhending sveinsbréfa fór fram fimm sinnum á liðnu starfsári, ýmist á Akureyri eða í Reykjavík. Iðan hefur lagt áherslu á að gera afhendingarnar að hátíðlegum, skemmtilegum og eftirminnilegum viðburðum þar sem þessum merku tímamótum í lífi fagfólks er fagnað.
Við afhendingu sveinsbréfa er boðið upp á skemmtiatriði, ljósmyndatöku og léttar veitingar. Þá eru möguleikar í fræðslu og símenntun kynntir fyrir nýsveinum. Með því er leitast við að skapa eftirminnilega umgjörð um áfangann og um leið minna á þau fjölbreyttu tækifæri sem standa fagfólki til boða til frekari þróunar í starfi.
-
752