Fara beint í efni

Málm- og véltæknigreinar

Fræðslan á starfsárinu einkenndist af öflugu og fjölbreyttu fræðsluframboði þar sem áhersla var lögð á að bregðast við óskum félagsmanna og fyrirtækja í greininni.

Í takt við atvinnulífið

Sigursveinn Óskar Grétarsson, leiðtogi málm- og véltæknigreina
Sigursveinn Óskar Grétarsson Leiðtogi málm- og véltæknigreina

Boðið var upp á fjölda námskeiða og var þátttaka góð á starfsárinu. Meðal nýrra námskeiða voru frágangur hitaveitusamskeyta, verklag og umgengni við suðuvinnu, MGPS-lagnakerfi fyrir sjúkrahús og skaðlausar prófanir level II. Samhliða nýjum námskeiðum voru eldri námskeið haldin samkvæmt dagskrá og eftir þörfum.

Málm- og véltæknigreinar tóku virkan þátt í viðburðum og keppnum á árinu. Málmsuðudagurinn var haldinn með glæsibrag, keppandi í málmsuðu fór á vegum Iðunnar fyrir hönd Íslands á EuroSkills í Herning og stóð sig með prýði. Leiðtogi greinarinnar tók þátt í þróunardegi framhaldsskólakennara ásamt því að heimsækja fjölda fyrirtækja og félagsmanna á tímabilinu.

Mikill stuðningur og áhugi frá bæði fyrirtækjum og félagsfólki einkenndi starfið á árinu og er það mikilvægur drifkraftur í sérhæfðu fræðslustarfi eins og okkar. Fram undan er áframhaldandi þróun námskeiða, meðal verkefna er að fá Iðuna viðurkennda sem kennsluaðila í skaðlausum prófunum. Það er af nægu að taka og áskoranirnar margar þegar unnið er að því að byggja upp fræðslu sem svarar kalli tímans í málm- og véltæknigreinum.