Fara beint í efni

Öryggisskóli iðnaðarins

Árið var viðburðaríkt og markaði mikilvæg tímamót í starfsemi Öryggisskóla iðnaðarins þegar starfsemin fór í gang með námskeiðahaldi.

Starfsmaður í öryggisbelti á byggingarsvæði

Frá uppbyggingu í öflugt starf

Eftir yfirgripsmikla þarfagreiningu og þróun námsefnis á fyrri stigum hefur skólinn nú tekið á móti sínum fyrstu hópum með það að markmiði að efla öryggismenningu og auka gæði í öryggisfræðslu fyrir íslenskan iðnað.

Annar mikilvægur og stór áfangi náðist á árinu þegar Öryggisskólinn fékk aðstöðu að Stórhöfða 27 í Reykjavík. Þar er unnið hörðum höndum að því að skapa hvetjandi og öflugt umhverfi fyrir fræðslu, faglegan vettvang, hópefli og verklegar æfingar. Eigin aðstaða breytir miklu og opnar fjölmörg tækifæri til að þróa námskeið og kennsluaðferðir enn frekar. Sérstök áhersla er lögð á að herma eftir raunverulegum aðstæðum og takast á við þær áskoranir sem starfsfólk mætir daglega á vinnustöðum sínum.

Námskeið skólans byggja á þeirri skýru sýn að öryggi sé sameiginlegt verkefni allra og órjúfanlegur hluti af menningu og daglegum vinnubrögðum fyrirtækja. Í kennslunni er rík áhersla lögð á virka þátttöku, opnar umræður og hagnýta verklega þjálfun. Markmiðið er að þátttakendur fari til baka á sína vinnustaði með verkfæri sem nýtast strax í starfi.

Öryggisskóli iðnaðarins hefur því stigið stór og mikilvæg skref fram á við á árinu. Með reglulegu námskeiðahaldi, glæsilegri nýrri aðstöðu og áframhaldandi öflugu samstarfi við atvinnulífið eru spennandi tækifæri fram undan. Á næsta ári verður lögð áhersla á að efla starfsemina enn frekar, þróa og víkka út námsframboðið og skapa sterkan vettvang með það að leiðarljósi að stuðla að enn sterkari öryggismenningu í íslenskum iðnaði.

Námskeið skólans byggja á þeirri skýru sýn að öryggi sé sameiginlegt verkefni allra.