Fræðsla
Fræðslustarf Iðunnar fræðsluseturs var öflugt á liðnu starfsári. Boðið var upp á fjölbreytt úrval námskeiða og viðburða þvert á ólíkar starfsgreinar og starfssvið. Gæði náms og þjónustu eru áfram í brennidepli og lögð áhersla á að fræðslan þróist í takt við þarfir félagsfólks og atvinnulífsins.
Fræðsla í takt við þarfir félagsfólks
Góð tengsl og samtal við félagsfólk eru mikilvægur grunnur að þróun fræðslustarfs Iðunnar. Á árinu var því lögð rík áhersla á samtal við félagsfólk á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Samtalið snerist meðal annars um þarfir fólks í starfi, þær áskoranir sem blasa við og tækifæri til að efla þekkingu og færni með símenntun.
Samtalið fór fram með ýmsum hætti og meðal annars voru lagðar kannanir fyrir félagsfólk og fyrirtæki. Svörin veittu dýrmæta innsýn í þarfir ólíkra starfsgreina og munu nýtast við áframhaldandi þróun fræðslu og þjónustu Iðunnar.
Markmiðið er skýrt; að félagsfólk eigi greiðan aðgang að fjölbreyttri og hagnýtri fræðslu sem nýtist í starfi. Með því að hlusta, þróa og bregðast við þörfum félagsfólks getur Iðan haldið áfram að byggja upp fræðslu sem skiptir máli í dag og til framtíðar.
Tölfræði námskeiða
Á tímabilinu 2013–2026 hafa um 45.500 þátttakendur sótt rúmlega 4.600 námskeið.
Bílgreinar
Námskeiðsframboð fyrir fagfólk í bílgreinum var fjölbreytt og samanstóð bæði af nýjum og rótgrónum námskeiðum sem hafa sannað gildi sitt.
Bygginga- og mannvirkjagreinar
Mikill fjölbreytileiki einkenndi þau verkefni sem unnin voru á starfsárinu.
Matvæla- og veitingagreinar
Starfsárið einkenndist af fjölbreyttu fræðsluframboði og aukinni áherslu á verklega fræðslu fyrir fagfólk í matvæla- og veitingagreinum.
Málm- og véltæknigreinar
Fræðslan á starfsárinu einkenndist af öflugu og fjölbreyttu fræðsluframboði þar sem áhersla var lögð á að bregðast við óskum félagsmanna og fyrirtækja í greininni.
Prent- og miðlunargreinar
Starfsárið einkenndist af áherslu á framtíð prent- og miðlunargreina og tengingu íslensks fagfólks við alþjóðlega þróun.
Alþjóðlegt samstarf
Alþjóðastarf Iðunnar var öflugt og fjölbreytt á starfsárinu. Í gegnum Erasmus+ fékk fjöldi iðnnema, nýsveina, félagsfólks og starfsfólks tækifæri til náms, starfsþjálfunar og starfsspeglunar í Evrópu. Jafnframt tók Iðan á móti evrópskum námsmönnum, kennurum, sérfræðingum og faghópum.
Fyrirtækjaþjónusta
Fyrirtækjaþjónusta Iðunnar felst í góðu samtali stjórnenda fyrirtækja við leiðtoga iðngreinanna. Leiðtogar greinanna heimsækja fyrirtæki á sínu sviði.
Fræðslustyrkir
Iðan fræðslusetur er hluti af Áttinni en þar eiga fyrirtæki sem greiða endurmenntunargjöld til Iðunnar, og eru í skilum, rétt á að sækja um fræðslustyrk vegna starfstengdra námskeiða.
Öryggisskóli iðnaðarins
Árið var viðburðaríkt og markaði mikilvæg tímamót í starfsemi Öryggisskóla iðnaðarins þegar starfsemin fór í gang með námskeiðahaldi.
Hafðu áhrif
Hafðu áhrif er liður í vinnu Iðunnar við að styrkja tengsl við félagsfólk og fyrirtæki í iðnaði um land allt.
Markmiðið er að eiga beint samtal við atvinnulífið og nýta þá innsýn til að þróa fræðslu og þjónustu Iðunnar. Með því að hlusta og kortleggja áherslur á hverju svæði fær Iðan betri sýn á hvernig námsframboð og símenntun geta mætt raunverulegum aðstæðum í atvinnulífinu.
Á fundunum er starfsemi og þjónusta Iðunnar kynnt en megináherslan er á samtalið við þátttakendur. Þar er rætt um fræðsluþarfir og tækifæri til að efla sí- og endurmenntun í heimabyggð. Hafðu áhrif skapar þannig vettvang þar sem félagsfólk og fyrirtæki geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri og tekið þátt í að móta áframhaldandi þróun fræðslu og þjónustu Iðunnar.
Þróun fræðslu á vef Iðunnar
Á árinu var áfram unnið að þróun fræðslu á námsvef Iðunnar fræðsluseturs með það að markmiði að bæta aðgengi að námi og gera nám sveigjanlegra fyrir félagsfólk.
Vefstjóri Iðunnar ber ábyrgð á vinnunni sem er þvert á fyrirtækið og felur í sér þróun á virkni á vef fyrir námskeið og sveinspróf.
Félagsfólk – Mínar síður
Á mínum síðum hefur félagsfólk aðgengi að viðurkenningum fyrir nám og gott yfirlit yfir námsferil sinn hjá Iðunni fræðslusetri. Þar eru einnig aðgengileg vefnámskeið en við skráningu opnast aðgengi að námsefni í heilt ár. Stefnan er að byggja upp innri fræðsluvef sem aðlaðandi og notendavænt svæði fyrir félagsfólk, kennara og fyrirtæki sem skipuleggja fræðslu fyrir félagsfólk.
- Vefnámskeið
- Yfirlit yfir námsferil
- Viðurkenningar fyrir nám
- Aðgangur að námsefni í eitt ár
Fyrirtæki – Fyrirtækjasíður
Á fyrirtækjasíðum Iðunnar hafa fyrirtæki aðgang að upplýsingum um námskeið starfsmanna sem þeir greiða fyrir, geta sótt reikninga og fjárhagsupplýsingar tengdar námskeiðunum og hafa yfirlit yfir tölfræði um nám, svo sem fjölda námskeiða og kenndar fræðslustundir.
- Námskeið starfsmanna
- Fjöldi námskeiða
- Kenndar fræðslustundir
- Reikningar og fjárhagsupplýsingar
Faglegir fræðsluviðburðir
Iðan stendur reglulega fyrir faglegum viðburðum fyrir félagsfólk þar sem fræðsla, nýjungar og samtal innan iðngreinanna eru í forgrunni. Viðburðirnir skapa vettvang til að hittast, sækja innblástur, kynnast nýrri þekkingu og tækni og efla tengsl við annað fagfólk.
Meðal viðburða eru Málmsuðudagurinn, Dagur prents og hönnunar og aðrir fag- og fræðsluviðburðir sem taka mið af ólíkum greinum Iðunnar. Markmiðið er að bjóða félagsfólki upp á fjölbreytt tækifæri til að fylgjast með þróun í sínu fagi, deila reynslu og styrkja faglegt tengslanet.