Fara beint í efni

Gæðamál

Í upphafi starfsárs hófst markviss undirbúningsvinna fyrir EQM+ gæðavottun Iðunnar. Vottunin felur í sér reglubundið mat á gæðakerfi og starfsháttum Iðunnar og er mikilvægur liður í að tryggja fagmennsku, gagnsæi og samræmi í starfseminni. Felur hún einnig í sér möguleika á að greina tækifæri til umbóta og styðja við stöðuga þróun.

Gæðastjórnun fær aukið vægi

Sólveig Indriðadóttir, náms- og starfsráðgjafi og gæðastjóri
Sólveig Indriðadóttir Náms- og starfsráðgjafi og gæðastjóri

Undirbúningurinn fór að mestu fram fyrri part haustannar 2025 og fól meðal annars í sér yfirferð á gæðaskjölum, verklagi og ferlum. Starfsfólk tók virkan þátt í vinnunni með því að yfirfara þau skjöl sem sneru að störfum þess og meta hvort skráð verklag endurspeglar raunverulega framkvæmd. Þátttaka starfsfólks er mikilvæg, enda byggist virkt gæðakerfi á sameiginlegri ábyrgð og því að gæðamál séu samþætt daglegum störfum.

EQM úttektin fór fram í október undir umsjón gæðaráðs með þátttöku ábyrgðaraðila einstakra gæðaskjala eftir þörfum. Í nóvember 2025 hlaut Iðan endurnýjun á EQM+ gæðavottun til þriggja ára. Vottunin staðfestir að starfshættir og gæðakerfi Iðunnar uppfylli þær kröfur sem gerðar eru og styður við áframhaldandi þróun og umbætur í starfseminni.

Í kjölfar úttektarinnar voru skilgreind úrbótaverkefni og markviss vinna við þau sett í gang. Jafnframt voru reglubundnar innri úttektir teknar upp á ný, en þær gegna lykilhlutverki við að tryggja virkt gæðakerfi, reglulega endurskoðun gæðaskjala og stöðugar umbætur á verklagi.

Sérstakur hópur var skipaður til að annast innri úttektir og fékk hann viðeigandi fræðslu til undirbúnings verkefninu. Samhliða því var hlutverk gæðastjóra styrkt með aukinni áherslu á heildstæða umsjón gæðastarfsins, þar á meðal innri úttektir, ritstýringu gæðaskjala og gæðahandbók. Fyrstu innri úttektirnar hafa þegar farið fram og verða mikilvægur hluti af reglulegu gæðastarfi.

Á árinu hefur gæðastjórnun þannig fengið aukið vægi innan Iðunnar og orðið sýnilegri þáttur í starfseminni. Gæðaráð vinnur nú að starfsáætlun þar sem skipulag og helstu áherslur ráðsins verða skilgreindar með skýrum hætti. Öflugt gæðakerfi styður við samræmt verklag, markvissar umbætur og faglegt starf innan Iðunnar og er mikilvæg forsenda þess að félagið geti boðið framúrskarandi þjónustu og fræðslu í samræmi við stefnu sína.

Á árinu hefur gæðastjórnun þannig fengið aukið vægi innan Iðunnar og orðið sýnilegri þáttur í starfseminni

Aukið samráð við félagsfólk og fyrirtæki

Á síðasta starfsári samþykkti stjórn Iðunnar verkefni sem miða að skýrara hlutverki og umboði stjórnenda og starfsfólks, styrkingu tengsla við félagsfólk og fyrirtæki og skýrari verkaskiptingu innan Iðunnar.

Þetta fól meðal annars í sér nýtt fyrirkomulag við samráð og þarfagreiningu og breytingu á skipulagi félagsins. Áhersla var lögð á að breikka aðkomu félagsfólks og atvinnurekenda og nýta til þess fjölbreyttari leiðir, meðal annars fyrirtækjaheimsóknir, fræðsluþing, kannanir og sérfræðihópa sem kallaðir eru saman eftir viðfangsefnum hverju sinni. Markmiðið er að efla tengsl við hagaðila og tryggja að þróun náms og símenntunar byggi á markvissri þarfagreiningu.