Bílgreinar
Námskeiðsframboð fyrir fagfólk í bílgreinum var fjölbreytt og samanstóð bæði af nýjum og rótgrónum námskeiðum sem hafa sannað gildi sitt.
Nýjungar sóttar út í heim
Alþjóðlegt samstarf var áberandi og unnið með fjórum erlendum fyrirtækjum að miðlun nýrrar þekkingar og aðferða. Þar má meðal annars nefna nýtt námskeið í límréttingum (GPR) og námskeið í viðgerðum á áli, sem mikil eftirspurn hafði verið eftir.
Viðamesta og mest spennandi verkefni ársins var bóklegt og verklegt námskeið um rafvæðingu eldri bíla. Sérfræðingar frá Electric Classic Cars, sem eru í fremstu röð á þessu sviði, leiðbeindu á námskeiðinu og miðluðu dýrmætri þekkingu.
Í verklega hluta námskeiðsins var Land Rover Defender, árgerð 2007, breytt í rafbíl með rafhlöðu og öðrum íhlutum úr Nissan Leaf. Námskeiðið var mjög vel sótt og vakti mikla athygli.
Keppandi í bifvélavirkjun tók þátt í fyrsta sinn á EuroSkills og var styrktur til keppni af Iðunni fræðslusetri. Þátttakan skilaði keppanda og öðrum aðstandendum verkefnisins dýrmætri reynslu sem mun nýtast við áframhaldandi uppbyggingu. Stefnt er að þátttöku í EuroSkills í Þýskalandi árið 2027.
Fagfólk sem áður skipaði fagráð bílgreina fór í endurmenntunarferð til Oslóar. Þar voru bílaumboð, verkstæði og hagsmunasamtök heimsótt til að fræðast um það hvernig Norðmönnum hefur tekist að rafvæða bílaflotann hratt og hvaða áhrif þróunin hefur haft á viðgerðir, þjónustu og menntun fagfólks.